Category: Fréttir

Frjáls félagasamtök skipta sköpum fyrir þróun samfélagsins

Félagasamtök snerta með einum eða öðrum hætti líf flestra í landinu –annað hvort í gegnum beina þátttöku eða með því að njóta góðs af starfi þeirra. Félagasamtök hafa tekið tekið að sér mikilvæg hlutverk í þjónustu við almenning og sérstaklega ákveðna þjóðfélagshópa. Þau glíma ekki síður við að leysa ný samfélagsleg vandamál; þau eru í sjálfu sér farvegur fyrir hugðarefni,… Sjá meira →

Hugsað í heimsmarkmiðum

Vinnustofa um heimsmarkmiðin miðvikudaginn 2. mars kl. 08:15-11:15 í sal Allsherjarþings í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna, Laugavegi 77 (4.hæð) 101 Reykjavík Vinnustofa Almannaheilla og ´Félags sameinuðu þjóðanna fyrir fulltrúa hjá frjálsum félagasamtökum til þess að byrja að kortleggja verkefni sín, tengja við og innleiða heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í starfsemi sinni. Markmiðið með vinnustofunni er að þátttakendur nái dýpri þekkingu á þeim… Sjá meira →

Öllum til heilla samtal um samfélagslistir

Vekjum athygli á viðburðaröðinni “ÖLLUM TIL HEILLA samtal um samfélagslistir” sem Reykjavíkurkademían, Öryrkjabandalag Íslands, Listahátíð í Reykjavík, Listaháskóla Íslands, Borgarleikhúsið, Reykjavíkurborg og List án landamæra, standa fyrir vorið 2022. Fyrsti viðburðurinn af fimm “HVAÐ ERU SAMFÉLAGSLISTIR?” fer fram miðvikudaginn 16. febrúar kl. 15-17 á Stóra sviði Borgarleikhússins og í beinni útsendingu í streymi. Vegna samgöngutakmarkana þarf að skrá þátttöku á upphafsviðburðinn… Sjá meira →

Félög til almannaheilla, fimmtudaginn 3. mars kl. 12

Hádegisfundi Almannaheilla og Vaxandi með Áslaugu Björgvinsdóttur lögmanni og sérfræðingi í félagarétti sem átti að vera fimmtudaginn 10. febrúar kl. 12 er frestað til fimmtudagsins 3. mars kl. 12:00. Málstofan er opin öllum og fer fram í Háskóla Íslands, Oddi stofa 206, og í gegnum Zoom. Áhugasamir eru vinsamlega beðnir um að skrá sig hér. Áslaug fjallar um nýja almannaheillafélagsformið… Sjá meira →

Gagnaskil 20. janúar

Þau félög sem hafa fengið samþykki fyrir skráningu á Almannaheillaskrá þurfa að skila inn upplýsingum, rafrænt eigi síðar en 20. janúar, um móttöku styrkja fyrir nóvember og desembermánuð. Eingöngu um að ræða móttekna styrki án gagngjalds til styrkveitanda þ.e. ekki er heimilt að skrá félagsgjöld, greiðslur fyrir happdrættismiða, auglýsingar o.s.frv. Skila þarf upplýsingum rafrænt í gegnum gagnaskil á þjónustusíðunni www.skattur.is.… Sjá meira →

Skil á upplýsingum um gjafir og framlög 2021 fyrir 20. janúar

Minnum félög sem skráðu sig á Almannaheillaskrá á síðasta ári að skilfrestur á upplýsingum um gjafir og framlög er til 20. janúar næstkomandi vegna framlaga og gjafa sem bárust frá 1. nóvember til 31. desember. Form vegna þessara skila verður aðgengilegt í vefskilum Skattsins innan skamms. Sjá frekari upplýsingar hjá Ríkisskattstjóra. Að öllu jöfnu skal móttakandi vera skráður á almannaheillaskrá… Sjá meira →

Fræðslufundi um heimsmarkmiðin frestað til 3. febrúar

Fræðslufundur um heimsmarkmiðin sem átti að vera 27. janúar er frestað til fimmtudagsins 3. febrúar 2022. Að fundinum standa Almannaheill og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi. Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig hér. Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Félags Sameinuðu þjóðanna mun halda stutta kynningu um heimsmarkmiðin og ávinning félagasamtaka að taka þau upp og samþætta í daglega starfsemi sína.… Sjá meira →

Til hamingju með dag sjálfboðaliðans

Hildur Helga Gísladóttir, varaformaður Almannaheilla, samtaka þriðja geirans. (birt í Morgunblaðinu) Sameinuðu þjóðirnar útnefndu Dag sjálfboðaliðans til að vekja athygli á öllum þeim einstaklingum sem sinna sjálfboðaliðastörfum. Almenn skilgreining á sjálfboðaliðastarfi er: Sjálfboðið vinnuframlag einstaklinga sem taka að sér að sinna valfrjálsum viðfangsefnum sem unnin eru innan ákveðins ramma með hagsmuni almennings að leiðarljósi, án þess að sjálfboðaliðinn fái greiðslu… Sjá meira →

Dagur sjálfboðaliðans sunnudaginn 5. desember

Sunnudagurinn 5. desember er alþjóðlegur dagur sjálfboðaliða. Sjálfboðaliðastarf er mikilvægur þáttur í starfsemi flestra almannaheillafélaga hvort sem þau starfa á landsvísu eða á alþjóðlegum vettvangi.  Hjálparstarf kirkjunnar hefur um árabil aðstoðað fólk sem býr við kröpp kjör á Íslandi og fyrir síðustu jól nutu rúmlega 1700 fjölskyldur aðstoðar um allt land.  Sjálfboðaliðastarf teygir sig einnig út fyrir landsteinanna samanber saga… Sjá meira →

Svona skráir maður félag/stofnun á Almannaheillaskrá

Öll félög sem vilja nýta sér ávinning af lögum 32/2021 á þessu ári verða að skrá sig á Almannaheillaskrá fyrir áramót. Skilyrði fyrir frádrætti hjá gefendum er að móttakandi sé skráður á almannaheillaskrá á því tímamarki sem gjöf er afhent eða framlag veitt og gildir frádráttarheimildin um framlög sem berast frá og með þeim degi sem sótt var um skráningu… Sjá meira →