Skilyrði fyrir skráningu á Almannaheillaskrá

1. nóvember 2021 var heimilaður frádráttur frá skattskyldum tekjum vegna gjafa og framlaga til lögaðila, sem uppfylla tiltekin skilyrði og eru skráð í almannaheillaskrá sem Skatturinn heldur.

Sjá einnig umfjöllun á vefsíðu skattsins um Almannaheillaskrá samanber lög nr. 32/2021.

Meðal þeirra skilyrða sem lögaðilar þurfa að uppfylla til þess að gjafir eða framlög til þeirra skapi frádráttarrétt hjá gefanda er að um sé að ræða eftirfarandi starfsemi móttakanda:

  • Mannúðar- og líknarstarfsemi
  • Æskulýðs- og menningarmálastarfsemi
  • Starfsemi björgunarsveita
  • Vísindalega rannsóknarstarfsemi
  • Starfsemi sjálfstæðra háskólasjóða og annarra menntasjóða
  • Neytenda- og forvarnastarfsemi
  • Starfsemi þjóðkirkjunnar, þjóðkirkjusafnaða og annarra skráðra trú- og lífsskoðunarfélaga.

Viðkomandi móttakandi gjafar eða framlags þarf að vera skráður í almannaheillaskrá á því tímamarki þegar gjöf er afhent eða framlag veitt.