Frestur til að sækja um styrki til verkefna á sviði velferðarmála framlengdur

Félagsmálaráðuneytið hefur framlengt umsónafrest félagasamtaka til að sækja um styrki til verkefna á sviði velferðarmála til 22. nóvember. Veittir eru styrkir til afmarkaðra verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf samkvæmt áherslum ráðherra hverju sinni. Styrkir eru ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Þá má meðal annars veita til verkefna sem felast í því að útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslu, bjóða upp á stuðning og ráðgjöf og vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna. Að þessu sinni verður lögð sérstök áhersla á verkefni sem hvetja til virkni, vellíðan og valdeflingar einstaklinga í viðkvæmri stöðu s.s. þá sem búa við félagslega einangrun, ofbeldi eða aðstæður sem hindra þátttöku í samfélaginu.

Hafi umsækjandi áður fengið styrk frá félagsmálaráðuneytinu til verkefnis skal fylgja greinargerð með upplýsingum um framkvæmd þess og ráðstöfun styrkfjárins, til þess að ný umsókn verði tekin til greina. Umsóknarfrestur er til kl. 13.00 mánudaginn 22. nóvember 2021. Sækja skal um á rafrænu formi á umsóknarvef Stjórnarráðsins