Upptökur frá tveimur viðburðum Almannaheilla á Fundi fólksins

Hér að neðan má sjá upptökur frá tveimur viðburðum Almannaheilla sem fóru fram á Fundi fólksins 17. september síðastliðinn.

Annars vegar er um að ræða kynningu þar sem fjallað var um WELFARE-verkefnið, sem snýst um að byggja upp þverfaglegan vettvang, þjálfun og stuðning við samfélagsfrumkvöðla, og hins vegar pallborðsumræður þar sem farið var yfir hvernig til hefur tekist við innleiðingu tveggja nýrra laga um félög til almannaheilla og skattamál samtaka sem starfa að almannaheill.


Að breyta heiminum! Samfélagsleg nýsköpun, velferð og heimsmarkmiðin

Kynning frá Steinunni Hrafnsdóttur, prófessor í félagsráðgjöf og forsvarskonu Vaxandi – miðstöðvar um samfélagslega nýsköpun við HÍ – og Stefaníu G. Kristinsdóttur – doktorsnema og samfélagsfrumkvöðuls. Fjallað verður um WELFARE “Designing the future welfare systems” verkefnið, sem snýst um að byggja upp þverfaglegan vettvang, þjálfun og stuðning við samfélagsfrumkvöðla hvort sem er innan stofnana, sveitarfélaga, þriðja geirans eða samfélagsdrifinna fyrirtækja.

Gjörbreytt starfsumhverfi almannaheillasamtaka?

Pallborðsumræður þar sem farið er yfir hvernig til hefur tekist við innleiðingu tveggja nýrra laga um félög til almannaheilla og skattamál samtaka sem starfa að almannaheill, sem móta að stórum hluta starfsumhverfi þessara samtaka.

Þátttakendur í umræðunum eru:
Andri Árnason, framkvæmdastjóri Takk
Helgi Björnsson, fjármálastjóri Krabbameinsfélagsins
Sigurjón Páll Högnason, lögfræðingur hjá KPMG.

Jónas Guðmundsson, formaður Almannaheilla stýrir umræðum.