Almannaheill og Fræðasetur þriðja geirans í samvinnu við velferðarráðuneytið efna til hádegismálstofu
Mikilvægi heildarlöggjafar um starfsemi frjálsra félagasamtaka og sjálfseignarstofnana
Hádegismálstofa verður haldin í Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101, þann 14. febrúar nk. kl. 12:00-13:15.
Almannaheill og Fræðasetur þriðja geirans í samvinnu við velferðarráðuneytið efna til málstofu um heildarlöggjöf um starfsemi almannaheillasamtaka. Lagaleg skilgreining slíkra samtaka gæti gefið þeim skýrari réttarstöðu og rekstrarumhverfi. Málstofan er haldin í framhaldi af útgáfu skýrslu um mat á mikilvægi heildarlöggjafar um starfsemi frjálsra félagasamtaka og sjálfseignastofnana sem nefnd á vegum félags- og tryggingamálaráðherra skipaði þann 8.apríl 2009.
Dagskrá
12:00 Setning málstofu – Dr. Steinunn Hrafnsdóttir, dósent við Félagsráðgjafadeild HÍ.
12:05 Ávarp – Guðbjartur Hannesson, ráðherra velferðarráðuneytis
12:15 Fræðasetur þriðja geirans – Dr. Ómar H. Kristmundsson, prófessor við Stjórnmálafræðideild HÍ
12:35 Almannaheill , samtök þriðja geirans – Eva Þengilsdóttir MPA
12:45 Umræður
13:15 Málstofu slitið
Fundarstjóri verður Guðrún Agnarsdóttir, formaður Almannaheilla
Áhugasamir eru vinsamlega beðnir um að skrá þátttöku sína hér að neðan:
http://stofnanir.hi.is/thridjigeirinn/malstofa_14_februar_um_heildarloggjof