Lýsa – Fundur fólksins

LÝSA – Fundur fólksins verður haldin í þriðja sinn í Hofi á Akureyri 6. og 7. september.

LÝSA er fyrir alla borgara samfélagsins og er mikilvægur vettvangur til að ræða málefni líðandi stundar og byggja brú milli almennings, félagasamtaka og stjórnmálafólks. Á hátíðinni fara fram bæði áhugaverðar og mikilvægar umræður sem snerta okkur öll og er markmiðið að hvetja allar stéttir samfélagsins til samtals.

Sem dæmi um viðburði á dagskránni í ár má nefna að Sölvi Tryggva verður með vinnusmiðju um hvernig við getum sigrað streituna, Bandalag háskólamanna mun ræða um áhrif fjórðu iðnbyltingunnar og Heimili og skóli verða með málstofu um hatursorðræðu (No hate).

Dagskráin verður brotin upp með alls kyns uppákomum svo sem uppistandi og tónlist, Guðrún Sóley fær Jón Gnarr og fleiri góða gesti í sófaspjall og þá munu Jón Ólafs og Stebbi Hilmars skemmta gestum og hita upp fyrir tónleika í Hamraborg á laugardagskvöldinu.

Enginn aðgangseyrir er á hátíðina fyrir almenning. 

Sjá nánari upplýsingar HÉR


Á aðalfundi Almannaheilla í júní sl. var samþykkt að ráðstafa kr. 650.000 til þátttöku í Lýsu/Fundi fólksins. Gefst aðildarfélögum Almannaheilla kostur á að sækja um styrk til stjórnar Almannaheilla vegna kostnaðar við þátttöku í Lýsu. Er styrkurinn bundinn við þau félög sem taka þátt í Lýsu og leggja eitthvað af mörkum til dagskrár fundarins, t.d. kynningu á sinni starfsemi.

Gert er ráð fyrir að 15 styrkir að að upphæð kr. 45.000 hver verði til úthlutunar og verði eftirspurnin meiri gangi þau félög fyrir sem eiga erfiðara með að standa undir kostnaði við þátttöku.

Senda skal umsóknir með stuttum rökstuðningi í tölvupósti til formadur@almannaheill.is fyrir kl. 12 á hádegi þ. 22. ágúst.