Samstarf við Opna háskólann

Almannaheill hefur gert áframhaldandi samkomulag við Opna háskólann í Háskólanum í Reykjavík vegna námslínunnar Stjórnendur í þriðja geiranum.

Aðildarfélög Almannaheilla fá 10% afslátt af verði námsins.  Aðildarfélög Almannaheilla falla innan þriðja geirans, því með honum er átt við félög sem starfa í almannaþágu. Oft á tíðum eru áskoranirnar öðruvísi en hjá hagnaðardrifnum félögum eða opinberum stofnunum. Til að mynda er fjármögnun með öðrum hætti og viðskiptavinir eru aðrir, auk þess sem stjórnun sjálfboðaliða kallar á annars konar mannauðsstjórnun.

Til að nýta sér afslátt Almannaheilla á námskeiðið er bent á að hafa samband við Lindu Vilhjálmsdóttur verkefnastjóra námsins í netfangið lindav@ru.is eftir að skráningu er lokið og tengir hún afsláttarkjör við skráninguna.

Frekari upplýsingar um námið er hægt að finna með því að smella HÉR