Styrkir til félagasamtaka vegna verkefna á sviði heilbrigðismála

Vakin er athygli á því að heilbrigðisráðuneytið hefur auglýst er eftir umsóknum um styrki af safnliðum fjárlaga frá íslenskum félagasamtökum vegna verkefna á sviði heilbrigðismála. Einungis er tekið við rafrænum umsóknum. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um umsóknir á rafrænum eyðublöðum er að finna á umsóknarvef Stjórnarráðsins (http://minarsidur.stjr.is)   

Veittir styrkir til verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Styrkir eru ekki veittir til lengri tíma en eins árs í senn. Nánari upplýsingar um styrkina og skilyrði fyrir styrkveitingum koma fram í reglum um úthlutun þeirra.

Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 1. nóvember 2021.
Úthlutað verður eigi síðar en 1. febrúar 2022
.