Almannaheill – samtök þriðja geirans standa fyrir málþingi um mannauðsstjórnun í félagasamtökum. Eitt af mikilvægustu verkefnum frjálsra félagasamtaka er að virkja fólk til góðra verka. Stjórnun sjálfboðaliða felur í sér ýmsar áskoranir þegar kemur að því að ráða, þjálfa og leiða fólk áfram að sameiginlegu markmiði, oft í flóknum og erfiðum verkefnum. Almannaheill hefur fengið valinkunna fræðimenn og fólk með mikla reynslu af sjtórnun félagasamtaka til að fjalla um málefnið á hagnýtan hátt.
Yfirskrift máþingsins: Mannauðsstjórnun í félagasamtökum
Dagsetning: 25. febrúar 2015
Tími: 11.30 – 13.45
Staður: Háskólinn í Reykjavik, sal M101
Fyrir hverja: Stjórnendur og starfsmenn félagasamtaka
Dagskrá
Opunarávarp
Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra
Að virkja áhugahvöt sjálfboðaliða
Dr. Steinunn Hrafnsdóttir, dósent við HÍ
Mannauður félagasamtaka – sértækar áskoranir
Arney Einarsdóttir, lektor við HR
Mannauðskerfi skátanna
Benjamín Axel Árnason, Skátarnir (bís)
Að virkja sjálfboðaliða
Þráinn Hafsteinsson, Frjálsíþróttadeild ÍR,
Að loknum erindunum verða pallborðsumræður.
Fundarstjóri: Ólafur Proppé, formaður Almannaheilla
Frír aðgangur og allir velkomnir.