Miðvikudaginn 13. febrúar kl. 16.30-18.00 höldum við kynningarfund fyrir félagasamtök um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna eru 17 skýr markmið í þágu mannkynsins, jarðarinnar og hagsældar. Öll lönd og allir haghafar munu, í gegnum samstarfsverkefni, hrinda þessum markmiðum í framkvæmd.
Á þessum fundi verður kynnt hvernig almannaheillafélög og önnur félagasamtök geta lagt sitt af mörkum og fléttað heimsmarkmiðin inn í daglega starfsemi sína.
Fundurinn fer fram í húsnæði Áss, styrktarfélags að Ögurhvarfi 6, 203 Kópavogsbæ. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Sjáðu hér sögur sem við söfnum af félagasamtökum sem eru byrjuð að vinna með heimsmarkmiðin.