“Samtökin almannaheill vilja, í ljósi atburða síðustu daga, minna á það mikilvæga hlutverk sem íslensk almannaheillasamtök gegna í glímu við erfið áföll sem samfélag okkar verður fyrir.
Samtökin almannaheill hvetja nú öll íslensk almannaheillasamtök, á hvaða sviði þjóðlífsins sem þau starfa, til að leggja sig fram nú sem endranær við að liðsinna fólki sem glímir við vandamál vegna þeirrar fjármálakreppu sem ríður yfir þjóðina.”