Aðalfundur Almannaheilla 12. júní

Til aðildarfélaga Almannaheilla – samtaka þriðja geirans.

Boðað er til aðalfundar Almannaheilla – samtaka þriðja geirans fimmtudaginn 12. Júní n.k. í húsi Krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík, kl. 15:30 – 17:00.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Ávörp gesta
  3. Staðfesting á nýjum aðildarfélögum
  4. Skýrsla stjórnar um nýliðið starfsár og starfið framundan
  5. Skýrsla um fjárhag samtakanna og fjárhagsáætlun
  6. Umræður um skýrslur og afgreiðsla ársreiknings
  7. Kosning stjórnar og skoðunarmanna
  8. Ákvörðun um gjaldskyldu aðildarfélaga
  9. Lagabreytingar
  10. Önnur mál.

Í lögum Almannaheilla segir m.a.:

4. gr. Aðalfundur Almannaheilla fer með æðsta vald og ákvörðunarrétt í málefnum samtakanna. Skal hann haldinn fyrir 15. júní ár hvert. Senda skal út fundarboð til aðildarfélaga með minnst fjögurra vikna fyrirvara. Í aðalfundarboði skal kynna dagskrá, fundartíma og fundarstað. Aðalfundurinn telst lögmætur ef löglega er til hans boðað.

5. gr. Aðildarsamtökin eiga rétt á einum fulltrúa á aðalfundinn hvert. Aðildarsamtök sem greiða félagsgjöld samkvæmt efri þrepum í félagsgjaldaskrá Almannaheilla skulu eiga rétt á viðbótarfulltrúum, einum fyrir hvert þrep.

 

F.h. stjórnar Almannaheilla,

Undirskrift

 

 

Ólafur Proppé, formaður Almannaheilla

Skildu eftir svar