ÞRIÐJI GEIRINN SIÐLEGIR STARFSHÆTTIR OG ÁBYRGÐ STJÓRNA ALMANNAHEILLASAMTAKA

Opin hádegismálstofa á vegum Háskólans í Reykjavík og Almannaheilla, samtaka þriðja geirans.

Stund: Miðvikudagur 7. apríl kl. 12:00 – 13:15
Staður: Aðalbygging HR í Nauthólsvík, Fönix 3

ÁVARP

Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra

SIÐLEGIR STARFSHÆTTIR OG SETNING SIÐAREGLNA

Stefán Einar Stefánsson, siðfræðingur við lagadeild HR
Í fyrirlestrinum verður fjallað um hvað felst í siðlegum starfsháttum, hvaða kröfur er eðlilegt að gerðar séu og hverju siðareglur skipta.

ÁBYRGÐ STJÓRNENDA OG STJÓRNARMANNA Í ALMANNAHEILLASAMTÖKUM

Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri fjármála- og þróunarsviðs HR 
Í erindinu verður fjallað um þá ábyrgð sem hvílir á stjórnarmönnum og stjórnendum almannaheillasamtaka.

DRÖG AÐ SIÐAREGLUM ALMANNAHEILLA KYNNT, FYRIRSPURNIR OG UMRÆÐUR

Fundarstjóri er Guðrún Agnarsdóttir, formaður Almannaheilla

 

Allir velkomnir! Skráning á www.hr.is (einnig má senda póst á evath@ru.is)

Skildu eftir svar