Ráðherra styrkir Fund fólksins – lýðræðishátíð um samfélagsmál

Þann 11. apríl 2016 undirrituðu Almannaheill – Samtök þriðja geirans og félags- og

húsnæðismálaráðherra, Eygló Harðardóttir, samning um að veita Almannaheill fjárstuðning til að

standa fyrir lýðræðishátíð undir yfirskriftinni Fundur fólksins.

 

Fundur fólksins er að norrænni fyrirmynd og hefur um árabil verið haldin víða á Norðurlöndunum svo

sem Almendalsveckan á Gotlandi í Svíþjóð, Folkemødet á Bornholm í Danmörku og Arendalsuka í

Noregi Noregi. Í júní í fyrra var Fundur fólksins haldinn í fyrsta skipti hér á landi. Framkvæmdin var í

höndum Norræna hússins sem skapaði fundinum umgjörð með þátttöku 40 félagasamtaka sem stóðu

fyrir yfir 150 dagskrárliðum.

 

Samkvæmt samingnum sem er til tveggja ára er stefnt að því að Fundur fólksins verði árlegur

viðburður þar sem skapaður verður vettvangur fyrir umræður og skoðanaskipti á breiðum grundvelli

með aðkomu allra aðila sem vilja hafa góð áhrif á samfélagið og þróun. Félagið Almannaheill mun

annast skipulag fundarins og fær samkvæmt samningnum fjögurra milljóna króna fjárframlag á þessu

ári og sömu fjárhæð árið 2017 til stuðnings framkvæmdinni.

 

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, sagði við undirritun samningsins í dag að

markmiðið með fundi fólksins sé að auka traust og skilning milli aðila samfélagsins án þess að vera

föst í venjubundnum umræðufarvegi stjórnmála eða fjölmiðla: „Árið 2014 átti ég þess kost að sækja

fund fólksins í Almedalen í Svíþjóð. Ég heillaðist algjörlega af þeirri upplifun, því þar hefur tekist að

skapa vettvang fyrir vandaða umræðu um öll möguleg málefni samfélagsins og að virkja samtal milli

almennings og stjórnmálamanna. Ég sé fyrir mér að hér á landi geti Fundur fólksins orðið slíkur

vettvangur og liður í því að byggja upp traust í samfélaginu.“

 

Ketill Berg Magnússon, stjórnarformaður Almannaheilla segir stuðning velferðaráðuneytisins afar

mikilvægan fyrir umgjörð Fundar fólksins. Hann vonast til að fleiri stuðningaaðilar bætist í hópinn og

tryggi þannig að hægt sé að halda hér á landi slíka lýðræðishátíð þar sem fólk eigi samtal við

stjórnmálafólk og félagasamtök um mikilvægt málefni samfélagsins til að auka gagnkvæman skilning

og traust. Sjaldan hafi mikilvægi slíkrar umræðu verið jafn ljós og einmitt núna.