Oddfellowreglan gefur Almannaheillum húsnæði til þriggja ára

Félagar í Oddfellowreglunni á Íslandi afhentu, við hátíðlega athöfn í gær, Almannaheillum nýtt skrifstofuhúsnæði til afnota í Urriðaholti. Þetta er fyrsta fasta skrifstofa samtakanna.

Stefnt hefur verið að formlegri vígslu húsnæðisins frá því í byrjun árs en samkomutakmarkanir hafa hamlað því.

Guðrún Helga Bjarnadóttir, varaformaður Almannaheilla, bauð gesti velkomna, sérstaklega fulltrúa Oddfellowreglunnar. Á eftir henni steig Steindór Gunnlaugsson, formaður Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowreglunnar, í pontu og ræddi um starf Oddfellowa á Íslandi og þau fjölmörgu verkefni sem reglan hefur styrkt í þau rúmlegu 200 ár sem hún hefur starfað á Íslandi. Oddfellowreglan á Íslandi er grein af bandarísku reglunni, sem stofnuð var árið 1819. Starfsemi reglunnar hér á landi má rekja til þess þegar danskir Oddfellowar gáfu íslensku þjóðinni Holdsveikraspítalann í Laugarnesi í Reykjavík árið 1898.

Guðmundur Eiríksson stórsír reglunnar ræddi um starfsemi hennar um allt land og afhenti Jónasi Guðmundssyni, formanni Almannaheilla, gjafabréf Oddfellow.

Gjöfin felur í sér að Oddfellowreglan á Íslandi færir Almannaheillum, samtökum þriðja geirans, húsnæði að Urriðaholti 14 án leigugreiðslna til lok árs 2023.

Myndir frá formlegri vígslu húsnæðisins í gær.