Markaðssetning félagasamtaka: Hádegisfundur Almannaheilla og Vaxandi

Á rafrænum hádegisfundi Almannaheilla, samtaka þriðja geirans og Vaxandi, miðstöðvar um samfélagslega nýsköpun við Háskóla Íslands verður umfjöllunarefnið markaðssetning félagasamtaka.

Gestur fundarins er Laila Sæunn Pétursdóttir sem hefur umsjón með markaðsmálum Krafts, stuðningsfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda. Hún fjallar um undirbúning og framkvæmd markaðsherferða og kynnir markaðsherferðir sem hún hefur unnið.

Er markaðsstarf félagasamtaka frábrugðið öðru markaðsstarfi?

Frekari upplýsingar um hádegisfundinn má finna hér.

Almannaheill hefur í samstarfi við Vaxandi staðið að röð hádegisfunda og málþinga um málefni almannaheillasamtaka í allan vetur.

Fyrirlesari: Laila Sæunn Pétursdóttir