Hádegisfundi Almannaheilla og Vaxandi með Áslaugu Björgvinsdóttur lögmanni og sérfræðingi í félagarétti sem átti að vera fimmtudaginn 10. febrúar kl. 12 er frestað til fimmtudagsins 3. mars kl. 12:00.
Málstofan er opin öllum og fer fram í Háskóla Íslands, Oddi stofa 206, og í gegnum Zoom. Áhugasamir eru vinsamlega beðnir um að skrá sig hér.
Áslaug fjallar um nýja almannaheillafélagsformið samkvæmt lögum nr. 110/2021 sem tóku gildi 1. nóvember sl. Hún mun fara yfir helstu einkenni þess og skilyrði skráningar í almannaheillafélagskrá samkvæmt lögunum og bera saman við meginreglur um almenn félagasamtök og sjálfseignarstofnanir.
Áslaug mun jafnframt skoða lögin í tengslum við grundvallarreglur um sjálfræði félaga, samningsfrelsi og félagafrelsi, og í því sambandi frávíkjanlegar og ófrávíkjanlegar reglur laganna s.s. um stofnun, efni samþykkta, félagsaðild, stjórn, félagsfundi, ábyrgð á skuldbindingum og minnihlutavernd.
Í framhaldinu verða umræður meðal þátttakenda um ávinning af lagasetningunni og eftir atvikum hindranir sem félögin upplifa í tengslum við innleiðinguna.