Ályktun frá Samtökunum almannaheill

“Samtökin almannaheill vilja, í ljósi atburða síðustu daga, minna á það mikilvæga hlutverk sem íslensk almannaheillasamtök gegna í glímu við erfið áföll sem samfélag okkar verður fyrir.

Samtökin almannaheill hvetja nú öll íslensk almannaheillasamtök, á hvaða sviði þjóðlífsins sem þau starfa, til að leggja sig fram nú sem endranær við að liðsinna fólki sem glímir við vandamál vegna þeirrar fjármálakreppu sem ríður yfir þjóðina.

Samtökin hvetja ennfremur alla sem hafa tök á því, að bjóða sig fram til sjálfboðaliðastarfa hjá almannaheillasamtökum sem þess óska og stuðla þannig að því að þjóðin komist fyrr út úr þeim hremmingum sem hún hefur orðið fyrir.”

Samtökin almannaheill eru samstarfsvettvangur félaga og sjálfseignarstofnana sem vinna að almannaheill á Íslandi.

Skildu eftir svar