Félagslög Almannaheilla, samtaka þriðja geirans
Heiti og heimili
1. gr.
Almannaheill, samtök þriðja geirans, eru samstarfsvettvangur félaga og sjálfseignarstofnana á
Íslandi sem vinna að almannaheill án hagnaðarsjónarmiða—hér eftir nefnd almannaheillafélög.
Heimili þeirra og varnarþing eru í Garðabæ. Samtökin starfa samkvæmt lögum nr. 110/2021 um
félög til Almannaheilla.
Markmið
2. gr.
Almannaheillum, samtökum þriðja geirans, er ætlað að:
1. Vinna að sameiginlegum hagsmunamálum fyrir almannaheillasamtök og sjálfseignarstofnanir
sem starfa í almannaþágu, vinna að sem hagfelldustu starfsumhverfi fyrir þessa aðila, styrkja
ímynd og efla stöðu þeirra í samfélaginu.
2. Koma fram fyrir hönd þriðja geirans gagnvart opinberum aðilum og samfélaginu, stuðla að
umræðu um hagsmuna- og fræðslumál á meðal almannaheillafélaga og á opinberum vettvangi,
og þrýsta á stjórnvöld um aðgerðir í þágu þriðja geirans.
Samtökin leggja sérstaka áherslu á eftirfarandi:
Rekstrarumhverfi: Vinna að bættu skatta- og rekstrarumhverfi íslenskra almannaheillafélaga, til
samræmis við það sem best þekkist.
Lagaumhverfi: Stuðla að því að heildarlög um starfsemi frjálsra félagasamtaka og
sjálfseignarstofnana á hverjum tíma, tryggi sem best réttindi þeirra, skyldur og traust
rekstrarumhverfi þeirra, almenningi til heilla.
Fagmennska og fræðsla: Standa fyrir opinni umræðu og fræðslu til að stuðla að faglegum og
ábyrgum vinnubrögðum frjálsra félagasamtaka og sjálfseignarstofnana.
Ímynd: Skýra hlutverk almannaheillafélaga og sjálfseignarstofnana fyrir almenningi og opinberum
aðilum og undirstrika gagnsemi þeirra fyrir íslenskt samfélag.
Félagsaðild
3. gr.
Aðilar að samtökunum geta orðið frjáls félög og samtök með almennan aðgang og lýðræðislega
stjórnarhætti, sem skráð eru hjá hinu opinbera og er ætlað að vinna að heill ótiltekins fjölda
manna án hagnaðarsjónarmiða þeirra sem reka og stýra félaginu, einnig sjálfseignarstofnanir,
sem hafa samskonar markmið. Leggja verður aðildarumsókn, undirritaða af meirihluta stjórnar,
ásamt félagssamþykktum, skýrslu um starfsemi og ársreikningi, fyrir stjórn Almannaheilla.
Aðildarfélög gangast undir siðareglur samtakanna, sem aðalfundur setur. Stjórnin afgreiðir
umsóknir.
Úrsögn aðildarfélags skal tilkynnt stjórn Almannaheilla undirrituð af meirihluta stjórnar
viðkomandi félags. Vangoldin árgjöld síðustu tveggja ára jafngildir úrsögn án formlegrar
tilkynningar. Heimilt er að vísa aðildarfélagi úr Almannaheillum brjóti það gegn markmiðum og
samþykktum þeirra. Ákvörðun um brottvísun skal tekin á aðalfundi. Tillögur um brottvísun
aðildarfélags skulu berast stjórn að minnsta kosti fjórum vikum fyrir aðalfund og sendar
aðildarfélögum ásamt öðrum aðalfundargögnum telji stjórn tilefni til að fjalla um málið á
aðalfundi. Áður skal stjórn gefa viðkomandi félagi kost á að tjá sig um málið.
Brottrekstur þarf samþykki 2/3 fulltrúa á aðalfundi.
Aðalfundur
4. gr
Aðalfundur Almannaheilla fer með æðsta vald og ákvörðunarrétt í málefnum samtakanna. Skal
hann að jafnaði haldinn fyrir 15. júní ár hvert. Senda skal út fundarboð í tölvupósti til
aðildarfélaga með minnst fjögurra vikna fyrirvara. Í aðalfundarboði skal kynna dagskrá,
fundartíma og fundarstað. Önnur fundargögn. s.s. ársreikning, skal senda með tveggja vikna
fyrirvara. Aðalfundurinn telst lögmætur ef löglega er til hans boðað.
5. gr.
Aðildarfélögin eiga rétt á einum fulltrúa á aðalfundinn hvert. Aðildarfélög sem greiða félagsgjöld
samkvæmt efri þrepum í félagsgjaldaskrá Almannaheilla skulu eiga rétt á viðbótarfulltrúum,
einum fyrir hvert þrep (veltutengt). Rétt til setu á aðalfundi eiga þau aðildarsamtök sem eru
skuldlaus við félagið.
6. gr.
Á dagskrá aðalfundar skulu vera:
– Kosning fundarstjóra og fundarritara.
– Skýrsla stjórnar um nýliðið starfsár og starfið framundan.
– Skýrsla um fjárhag samtakanna.
– Umræður um skýrslur og afgreiðsla ársreiknings.
– Kosning stjórnar, skoðunarmanna .
– Ákvörðun um gjaldskyldu aðildarfélaga.
– Lagabreytingar og aðrar tillögur.
– Önnur mál.
7. gr.
Stjórnin skal kalla til aukaaðalfundar, annað hvort að eigin frumkvæði eða sé þess óskað af
minnst ¼ stofnana og félaga að samtökunum. Boðað skal til fundarins með sama hætti og til
aðalfundar. Í fundarboði skal getið hvert sé tilefni fundarins. Aukaaðalfundur skal hafa sama vald
og venjulegur aðalfundur.
Kjörgengi og kosningar
8. gr.
Stjórn samtakanna skipa sjö einstaklingar. Formaður skal kosinn sérstaklega og til eins árs í senn.
Árlega skulu kosnir þrír stjórnarmenn til tveggja ára setu. Kjósa skal sjö einstaklinga í varastjórn til
eins árs í senn. Ennfremur skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga eða trúnaðarmenn og einn til
vara til eins árs. Kosningar fara fram á aðalfundi. Stjórn setur sér starfsreglur.
9. gr.
Stjórn samtakanna skal fyrir aðalfund tilnefna þriggja manna uppstillingarnefnd. Hlutverk hennar
er að tryggja að í hvert laust sæti í stjórn sé a.m.k. einn frambjóðandi. Skal nefndin í störfum
sínum og að fengnum tillögum aðildarfélaga leitast við að tryggja að jafnræði ríki milli
aðildarfélaganna um setu í stjórn, að jafnrétti ríki milli kynja um stjórnarþátttöku, svo og að
eðlileg endurnýjun stjórnarmanna eigi sér stað.
10. gr.
Formaður er kjörinn sérstaklega á aðalfundi en að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum.
Hana skipa varaformaður, gjaldkeri, ritari og meðstjórnendur. Stjórnin ber ábyrgð á störfum
samtakanna. Hún getur skipað sérstakar nefndir til að sinna tilteknum málefnum og getur ráðið
starfsfólk eftir því sem fjárhagur leyfir. Stjórnarfundir skulu færðir til bókar og skal bókunin vera
aðgengileg aðilum að samtökunum.
Fjárhagsmál
11. gr.
Rekstur og verkefni samtakanna eru fjármögnuð með árgjöldum sem ákveðin eru á aðalfundi og
taka mið af veltu aðildarfélags (þrepaskipt), almennum og opinberum styrkjum auk styrkja til
afmarkaðra verkefna. Firmaritun er í höndum stjórnar.
12. gr.
Reikningsárið skal vera almanaksárið. Minnst tveimur vikum fyrir aðalfund skal senda
aðildarfélögum með öðrum fundargögnum (sbr. gr. 4) ársreikning yfirfarinn af tveimur
skoðunarmönnum eða trúnaðarmönnum.
13. gr.
Formaður og gjaldkeri skuldbinda samtökin í sameiningu, í umboði stjórnar, en í fjarveru annars
þeirra kemur einhver stjórnarmanna í stað þess sem er fjarverandi.
Lagabreytingar
14. gr.
Tillögur um breytingar á lögum samtakanna skal senda stjórn eigi síðar en fjórum vikum fyrir
aðalfund. Tillögur til breytingar á lögum skal senda aðildarfélögum a.m.k. tveimur vikum fyrir
aðalfund samhliða fundarboði.
15. gr.
Til að breyta lögum þessum þarf 2/3 fulltrúa á aðalfundi. Til þess að leggja samtökin niður þarf
sama hlutfall atkvæða. Séu samtökin lögð niður falla eignir þeirra til góðgerðarmála að ákvörðun
sama aðalfundar.
____________________________________________________________________________________________________
Afgreitt á aðalfundi Almannaheilla 30. maí 2011. Breyting var gerð á 1.grein á aðalfundi 12. júní
2014. Ákvæði til bráðabirgða var fellt út á aðalfundi 26. Maí 2016 Breyting var gerð á 1., 2., 3., 4.,
6., 7., 8., 10., 12., og 15. greinum á aðalfundi 26. maí 2016. Breytingar gerðar á aðalfundi 2. júní
2022 á öllum greinum nema grein 2, 10, 13 og 15.