Upptökur frá Fundi fólksins 2023

Upptökur frá Fundi fólksins 2023

Fundur fólksins fór fram dagana 15. – 16. september 2023. Fundarefni voru fjölbreytt en þar var m.a. rætt við fulltrúa stjórnmálaflokkanna, rætt við sérfræðinga um gervigreind, dánaraðstoð, umhverfis- og loftslagsmál og margt fleira.

Upptökur frá Fundi fólksins 2023

Fundur fólksins fór fram dagana 15. – 16. september 2023. Fundarefni voru fjölbreytt en þar var m.a. rætt við fulltrúa stjórnmálaflokkanna, rætt við sérfræðinga um gervigreind, dánaraðstoð, umhverfis- og loftslagsmál og margt fleira.

Almannaheill hafa staðið fyrir hátíðinni í gegnum árin og komið að skipulagi hennar.

Tilgangur fundarins er að skapa vandaðan vettvang þar sem boðið er til samtals milli almennings, stjórnmálafólks og frjálsra félagasamtaka, þar sem lýðræði og opin skoðanaskipti eru leiðarstefið.

Frjáls félagasamtök hafa verið leiðandi í undirbúningi hátíðarinnar með þátttöku og stuðningi opinberra aðila. 

Lýðræðishátíð unga fólksins er haldin undir hatti Fundar fólksins í Reykjavík. Hátíðin er að miklu leyti skipulögð af ungu fólki sem sjálft velur hvaða umræðuefni þau óska að setja á oddinn og þannig koma á framfæri hvaða mál brenna á þeim. Markmiðið með Lýðræðishátíð unga fólksins að gefa ungu fólki aukna möguleika á lýðræðislegri þátttöku með samræðum við ólíka aðila, s.s. stjórnmálaflokka, stofnanir, frjáls félagasamtök og aðra sem þau velja til þátttöku.

Upptökur frá Fundi fólksins 2023

Fleiri fréttir

Aðalfundur Almannaheilla miðvikudaginn 27. maí kl. 16:30

Með þessarri frétt boðum við til aðalfundar Almannaheilla miðvikudaginn 27. maí 2026 kl. 16:30.
Fundurinn verður haldinn í Mannréttindahúsinu við Sigtún 42 í Reykjavík.
Nánar →

Guðmundur Björgvin er sjálfboðaliði ársins 2025

Guðmundur Björgvin Gylfason er sjálfboðaliði ársins 2025 hjá Almannaheillum. Guðmundur er formaður stjórnar Einstakra barna, sem eru landssamtök barna með sjaldgæfa og alvarlega sjúkdóma.
Nánar →

Fjölmennum í Hörpu á fimmtudag

Fundur fólksins – ráðstefna Almannaheilla fer fram í Hörpu 13. nóvember á milli klukkan 14:00 - 18:00. Forseti Íslands or ráðherra félagsmála eru sérstakir gestir.
Nánar →
Scroll to Top