Fundur fólksins
Forsíða » Fundur fólksins
Fundur fólksins
Lýðræðishátíðin Fundur fólksins er vettvangur þar sem boðið er upp á samtal milli almennings, stjórnmálafólks og frjálsra félagasamtaka. Lýðræði, samfélagsþátttaka og opin skoðanaskipti eru leiðarstef í samtalinu.
Fundur fólksins er stærsti viðburður Almannaheilla ár hvert.
Fundurinn er lýðræðishátíð og var fyrst haldinn í Norræna húsinu sumarið 2015. Hátíðin var haldin í Hofi á Akureyri árið 2019 og gekk undir nafninu Lýsa.
Fundur fólksins, ráðstefna Almannaheilla, var haldin í Hörpu 29. nóvember 2024, daginn fyrir alþingiskosningar.