Aðalfundur Almannaheilla miðvikudaginn 27. maí kl. 16:30

Aðalfundur Almannaheilla miðvikudaginn 27. maí kl. 16:30

Með þessarri frétt boðum við til aðalfundar Almannaheilla miðvikudaginn 27. maí 2026 kl. 16:30.
Fundurinn verður haldinn í Mannréttindahúsinu við Sigtún 42 í Reykjavík.

Kæra forsvarsfólk aðildarfélaga,

Með þessum póst boðum við til aðalfundar Almannaheilla miðvikudaginn 27.
maí 2026 kl. 16:30.

Fundurinn verður haldinn í Mannréttindahúsinu við Sigtún 42 í Reykjavík.

Boðið er jafnframt í viðhengi þessa skeytis.

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar um nýliðið starfsár og starfið framundan.
  3. Skýrsla um fjárhag samtakanna.
  4. Umræður um skýrslur og afgreiðsla ársreiknings.
  5. Kosning stjórnar og skoðunarmanna.
  6. Ákvörðun um gjaldskyldu aðildarfélaga.
  7. Lagabreytingar og aðrar tillögur.
  8. Önnur mál.
  9. Fundi slitið.

Samkvæmt samþykktum félagsins eiga aðildarfélög rétt á einum fulltrúa á
aðalfundi nema þau aðildarfélög sem eru í efri þrepum í félagsgjaldaskrá
Almannaheilla eiga rétt á viðbótarfulltrúum, einum fyrir hvert þrep. Til
að eiga rétt á setu á aðalfundi þurfa aðildarfélög að vera skuldlaus við
félagið.

Kosið verður í eftirfarandi sæti í stjórn á fundinum:

  • Þrír aðalfulltrúar til tveggja ára.
  • Formaður til eins árs.
  • Sjö varafulltrúar til eins árs.
  • Tvo skoðunarmenn reikninga og einn til vara til eins árs.

Stjórn hefur skipað uppstillinganefnd samkvæmt samþykktum félagsins. Í
henni sitja Hildur Helga Gísladóttir, Jónas Guðmundsson, Árni Einarsson
og Guðlaug B. Guðjónsdóttir. Við hvetjum aðildarfélög sem eru með
áhugasamt fólk að setja sig í samband við nefndina í gegnum netfangið
hildurg@centrum.is.

Skráning á fundinn fer fram á netfanginu almannaheill@almannaheill.is.
Vinsamlega setjið „Skráning á aðalfund“ í subject-línuna og tilgreinið
nafn fulltrúa og frá hvaða félagi.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Bestu kveðjur,
Stjórn Almannaheilla

Fleiri fréttir

Aðalfundur Almannaheilla miðvikudaginn 27. maí kl. 16:30

Með þessarri frétt boðum við til aðalfundar Almannaheilla miðvikudaginn 27. maí 2026 kl. 16:30.
Fundurinn verður haldinn í Mannréttindahúsinu við Sigtún 42 í Reykjavík.
Nánar →

Guðmundur Björgvin er sjálfboðaliði ársins 2025

Guðmundur Björgvin Gylfason er sjálfboðaliði ársins 2025 hjá Almannaheillum. Guðmundur er formaður stjórnar Einstakra barna, sem eru landssamtök barna með sjaldgæfa og alvarlega sjúkdóma.
Nánar →

Fjölmennum í Hörpu á fimmtudag

Fundur fólksins – ráðstefna Almannaheilla fer fram í Hörpu 13. nóvember á milli klukkan 14:00 - 18:00. Forseti Íslands or ráðherra félagsmála eru sérstakir gestir.
Nánar →
Scroll to Top