Hildur gat ekki verið viðstödd aðalfundinn. Hún sendi frá sér rafræna kveðju og lagði þar áherslu á mikilvægi almannaheillafélaga í gegnum tíðina og þeim fjölmörgu verkefnum sem þau sinna í íslensku samfélagi.
„Þau veita stjórnvöldum aðhald og tala fyrir hönd hópa sem oft eiga sér ekki aðra talsmenn. Mikilvægi þeirra hefur ekki breyst, að mínu mati, heldur aukist í því samfélagi sem við lifum í í dag. Almannaheill, sem regnhlíf almannaheillafélaga á Íslandi, gegnir mikilvægu hlutverki í því að tala fyrir sameiginlegum málefnum og þeim áskorunum sem aðildarfélög þeirra standa frammi fyrir. Mig langar til að taka þátt í því starfi, takast á við áskoranirnar og lyfta þriðja geiranum á Íslandi enn frekar upp og efla,“ sagði hún.
Hildur tók fram að hún hafi alist svo að segja upp innan frjálsra félagasamtaka. Hún var lengi í Rauða krossinum, var um tíma framkvæmdastjóri LUF, er stofnandi FÁSES og sat þar í fjölda ára í stjórn. Nú er hún í Kvenréttindafélagi Íslands, sem er eitt aðildarfélaga Almannaheilla. Hildur er jafnframt með meistaragráðu í stjórnun og rekstri félagasamtaka frá Heidelberg-háskóla í Þýskalandi og hefur í gegnum tíðina leiðbeint og kennt víða um hlutverk og ábyrgð stjórna, lagaumhverfið og góða stjórnarhætti.
Ráðherra styður endurgreiðslu vsk
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, var gestur aðalfundarins og flutti ávarp við setningu hans. Hún velti upp hlutverkum almannaheillafélaga og hvatti forsvarsfólk þeirra til aukins samstarfs.
„Hvar værum við stödd ef við hefðum ekki alla þessa hugsjón og góða vilja sem fylgir því að vilja taka utan um samfélagið okkar, unga sem aldna. Það eru 586 almannaheillafélög skráð á Íslandi. Máttur þessara félaga er mjög mikill. Í mínum huga eru almannaheillafélög ekki aðeins viðbragðsaðilar heldur líka frumkvöðlar, sem ryðja gjarnan brautina fyrir hið opinbera og önnur kerfi. Ég hef lengi fylgst með störfum frjálsra félagasamtaka og ég hef alltaf dáðst að þeim, þeim mikla eldmóði og krafti sem þar er að finna,“ sagði hún og tók undir með áskorun stjórnar Almannaheilla, að styðja betur við endurgreiðslu virðisaukaskatt til handa félögum á almannaheillaskrá.
„Reksturinn er víða þungur og þeim mun ástæða fyrir því að leitast eftir því að auka samstarf félaganna og að stjórnvöld stígi inn í,“ sagði Inga.
Þetta var í samræmi við ályktun fundarins, sem samþykkti undir lok hans, að benda stjórnvöldum á að bráðabirgðaákvæði í lögum um virðisaukaskatt muni renna út um næstu áramót. Skoraði fundurinn á Alþingi að framlengja ákvæðið í að minnsta kosti fimm ár.
Hefðbundinn fundur
Aðalfundur Almannaheilla var að öðru leyti hefðbundinn. Eitt af síðustu verkum Tómasar, sem gaf ekki kost á sér áfram sem formaður, var að fara yfir skýrslu stjórnar ásamt því sem Ingveldur Jónsdóttir, gjaldkeri félagsins, fór yfir ársreikning og fjárhag samtakanna.
Breyting á stjórn
Ný stjórn var kosin. Hún er eftirfarandi:
Hildur Tryggvadóttir Flóvens, formaður (KRFÍ), til 2026.
Ragnhildur Freysteinsdóttir (Skógræktarfélag Íslands) til 2027.
Sigurgeir Þórisson (Bandalag Ísl. skáta) til 2027
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson (UMFÍ) til 2027
Þessi voru kjörin til tveggja ára í fyrra:
Ingveldur Jónsdóttir (ÖBÍ), til 2026
Sigríður Sólan (Foreldrajafnrétti) til 2026
Tryggvi Axelson (ADHD samtökin) til 2026
Varastjórn Almannaheilla 2025-2026:
Tinna Isebarn Landssamband ungmennafélaga (LUF)
Sigurður Sigurðsson Heimili og skóli
Una Gunnarsdóttir Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna (SKB)
Una Sveinsdóttir Kvenfélagasamband Íslands
Berglind Gunnarsdóttir Foreldrahúsi
Stefanía Traustadóttir U3A – Háskóli þriðja æviskeiðsins
Gunnar Hersveinn SÁÁ
Skoðunarmenn reikninga, trúnaðarmenn:
Einar Haraldsson – UMFÍ
Vilhjálmur Bjarnason – Samtök sparifjáreigenda
Til vara: Þóra Þórarinsdóttir – Ás styrktarfélag