Bókhaldsnámskeið á netinu fyrir aðildarfélög Almannaheilla

Bókhaldsnámskeið á netinu fyrir aðildarfélög Almannaheilla

Námskeiðið er haldið með rafrænum hætti í samvinnu við Bókhald og kennslu ehf., sem hefur langa reynslu af því að þjónusta félagasamtök og aðra aðila með óhagnaðardrifna starfsemi.

Almannaheill fór af stað 2022 með átak um sérstakt bókhaldsnámskeið fyrir starfsmenn og stjórnendur aðildarfélaga samtakanna og félagið hefur nú ákveðið að halda áfram þeirri vegferð.  Almannaheill var  með þessu m.a. að bregðast við óskum frá aðildarfélögum lið um fræðslu um stjórnunarhætti, ábyrgð og skyldur almannaheillasamtaka.  Á námskeiðinu verður fjallað um mikilvægi góðra bókhaldsvinnubragða í ljósi nýrra aðstæðna.

Námskeiðið er haldið með rafrænum hætti í samvinnu við Bókhald og kennslu ehf., sem hefur langa reynslu af því að þjónusta félagasamtök og aðra aðila með óhagnaðardrifna starfsemi.

Námskeiðið verður í þrem hlutum, þrjár klukkustundir í senn.

Kennslutímar eru þriðjudagana 16., 23., og 30. september 2025   frá kl. 9:00 til 12:00. 

Kennt verður á Zoom og efnið tekið upp og gert aðgengilegt fyrir þátttakendur geti þeir ekki mætt á fyrirfram ákveðnum kennslutímum.  Ætlast er til að nemendur séu bæði í mynd og með hljóð til að geta tekið þátt í miðlægri kennslu. Verkefni, sem ætlast er til að nemendur skili, eru unnin í lokin. Þátttakendur fá viðurkenningarskjal eftir námskeiðið.

Kennari og leiðbeinandi verður Inga Jóna Óskarsdóttir, formaður félags bókara og bókhaldsstofa og framkvæmdastjóri og eigandi Bókhalds og kennslu ehf.

Farið verður meðal annars yfir eftirfarandi:

  • Lög um bókhald, s.s. hvernig á að ganga frá pappírum, merking fylgiskjala og frágangur, geymsla, hvað eru gjöld og hvenær á að færa tekjur
  • Almenn félagasamtök og almannaheillaskrá. Upplýsingaskil vegna styrkja
  • Raunverulegir eigendur og samþykktir félagasamtaka • Bókhaldskerfi kynnt til sögunnar, hvernig getum við nýtt okkur þau betur?
  • Launamiðar og launaútreikningar
  • Ársreikningur, hvað þarf að koma fram í honum?
  • Verkefni, laun, deildir, sundurliðanir verkefna

Námskeiðið hentar öllum þeim sem vilja fá innsýn í bókhalds- og uppgjörsmál síns félags, svo sem skoðunarmönnum reikninga (trúnaðarmönnum), stjórnarfólki og starfsfólki, ekki síst framkvæmdastjórum og gjaldkerum stjórna.

Námskeiðið kostar 20.000 kr. á þátttakanda fyrir aðildarfélög Almannaheilla og 35.000kr. fyrir aðra.

Skráning hér: https://forms.gle/pAt5daPfTXXLSfah9

Krafa verður stofnuð í heimabanka greiðanda.

Síðasti skráningardagur er 9. September 2025.

Nánari upplýsingar veitir Inga Jóna Óskarsdóttir, netfang: bokhaldogkennsla@bokhaldogkennsla.

Fleiri fréttir

Bókhaldsnámskeið á netinu fyrir aðildarfélög Almannaheilla

Námskeiðið er haldið með rafrænum hætti í samvinnu við Bókhald og kennslu ehf., sem hefur langa reynslu af því að þjónusta félagasamtök og aðra aðila með óhagnaðardrifna starfsemi.
Nánar →
Tómas og Hildur.

Hildur er nýr formaður Almannaheilla

Hildur Tryggvadóttir Flóvens var kjörin formaður Almannaheilla á aðalfundi félagsins í gær. Hún tekur við keflinu af Tómasi Torfasyni, framkvæmdastjóra KFUM og KFUK, sem staðið hefur í stefninu síðastliðin tvö ár.
Nánar →

Aðalfundi Almannaheilla frestað til 3. júní

Aðalfundur Almannaheilla verður haldinn þriðjudaginn 6. maí 2025 klukkan 16:30 í húsi KFUM og KFUK við Holtaveg 28 í Reykjavík. Gestur fundarins verður Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðaherra.
Nánar →
Scroll to Top