Um Almannaheill
Forsíða » Um Almannaheill
Um Almannaheill
Almannaheill – samtök þriðja geirans – voru stofnuð sumarið 2008 til að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum fyrir almannaheillasamtök og sjálfseignarstofnanir sem starfa í almannaþágu, vinna að sem hagfelldustu starfsumhverfi fyrir þessa aðila, styrkja ímynd þeirra, efla stöðu þriðja geirans í samfélaginu og koma fram fyrir hönd hans gagnvart opinberum aðilum og fjölmiðlum.
Þá vinna samtökin að því að heildarlöggjöf verði sett um starfsemi frjálsra félagasamtaka, að skattaleg staða þeirra verði bætt, og að sýnileiki þriðja geirans í þjóðfélaginu verði aukinn.
Tómas Torfason, formaður Almannaheilla, færir Svanhildi Ólafsdóttur viðurkenningu sem sjálfboðaliði ársins 2023.