Þriðjudaginn næstkomandi, 12. feb. kl. 12:15 – 13:45 verður haldið málþing í Háskólanum í Reykjavík í sal M101 og eru allir velkomnir.
Smelltu hér til að fá nasasjón af því sem Almannaheillaaðilar gera fyrir sitt fólk.
Ragna Árnadóttir formaður opnað þingið og segir frá gerð lagafrumvarps um frjáls félagasamtök þar sem unnið er að því að tilvist félaga sem vinna án hagnaðarvonar í þágu almennings verði viðurkennd og framlag þeirra til íslensks samfélags metið á sýnilegan hátt.
Þrjú erindi verða flutt og eftir hvert þeirra eru gefnar 5 mínútur til spurninga og umræðna.
Áhrif félagsstarfs á heilsufar
Una María Óskarsdóttir MA í lýðheilsufræðum
Þáttur frjálsra félagasamtaka í lýðræði
Björn Þorsteinsson doktor í heimspeki og sérfræðingur við Heimspekistofnun Háskóla Íslands
Hvert er framlag frjálsra félagasamtaka?
Ketill B. Magnússon framkvæmdastjóri Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð
DAGSKRÁ