Almannaheill - samtök þriðja geirans
Almannaheill - samtök þriðja geirans eru samstarfsvettvangur félaga og sjálfseignarstofnana sem vinna að almannaheill á Íslandi. Samtökin voru stofnuð sumarið 2008 til að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum frjálsra félagasamtaka sem starfa í almannaþágu, jafnframt að vera málsvari þeirra gagnvart opinberum aðilum og fjölmiðlum. Þá ætla samtökin að vinna að því að heildarlöggjöf verði sett um starfsemi frjálsra félagasamtaka, að skattaleg staða þeirra verði bætt, og að sýnileiki þriðja geirans í þjóðfélaginu verði aukinn. Sjá nánar
Viðburðir
Þátttaka
Aðilar að Almannaheill eru samtök sem starfa í almannaþágu. Þau starfa af heilindum, hafa lýðræðislega stjórnunarhætti, skipulagsskrá og skila endurskoðuðum ársreikningum.
Sækja um aðild
Fréttir úr þriðja geiranum
30.5.2011 00:14
25.5.2011 15:32
5.5.2011 11:59
13.4.2011 15:02
1.4.2011 12:04
2.12.2011
52 á málþingi um sjálfboðastörf
25.11.2011
Allt um sjálfboðaliða
Almannaheill - samtök þriðja geirans og Fræðasetur þriðja geirans bjóða til málþings um þátt sjálfboðaliða í starfi félagasamtaka - í tilefni árs sjálfboðliða.
Fimmtudaginn 1. desember kl. 12-14 - stofu 103 á Háskólatorgi. DAGSKRÁ
25.11.2011
Allt um sjálfboðaliða
Almannaheill – samtök þriðja geirans og Fræðasetur þriðja geirans bjóða til málþings um þátt sjálfboðaliða í starfi félagasamtaka – í tilefni árs sjálfboðliða.
Fimmtudaginn 1. desember kl. 12-14 - stofu 103 á Háskólatorgi
3.2.2009
Tímamót - Sérstakir samningar Vinnumálastofnunar
Nýlega var tilkynnt um að Vinnumálastofnun verði heimilt að gera sérstakan samning við frjáls félagasamtök um að atvinnuleitandi taki þátt í sjálfboðaliðastarfi enda um að ræða vinnumarkaðsúrræði skv. b-lið 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Almannaheill fagnar þessu mikilvæga framtaki.
14.10.2008
Ályktun frá Samtökunum almannaheill
"Samtökin almannaheill vilja, í ljósi atburða síðustu daga, minna á það mikilvæga hlutverk sem íslensk almannaheillasamtök gegna í glímu við erfið áföll sem samfélag okkar verður fyrir.
Samtökin almannaheill hvetja nú öll íslensk almannaheillasamtök, á hvaða sviði þjóðlífsins sem þau starfa, til að leggja sig fram nú sem endranær við að liðsinna fólki sem glímir við vandamál vegna þeirrar fjármálakreppu sem ríður yfir þjóðina."





