Félagsmálaráðuneytið auglýsir styrki til félagasamtaka

Auglýst er eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum til verkefna sem heyra undir málefnasvið félagsmálaráðuneytisins. Félagasamtök sem hljóta styrki á fjárlögum eða eru með samninga við ráðuneytið eða stofnanir þess, vegna skilgreindra verkefna, geta ekki sótt um styrki af safnliðum fjárlaga fyrir sömu verkefni. Reglur um úthlutun styrkja sem félags- og barnamálaráðherra veitir samkvæmt safnliðum fjárlaga hverju sinni. Veittir eru… Sjá meira →

Styrkir til félagasamtaka vegna verkefna á sviði heilbrigðismála

Vakin er athygli á því að heilbrigðisráðuneytið hefur auglýst er eftir umsóknum um styrki af safnliðum fjárlaga frá íslenskum félagasamtökum vegna verkefna á sviði heilbrigðismála. Einungis er tekið við rafrænum umsóknum. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um umsóknir á rafrænum eyðublöðum er að finna á umsóknarvef Stjórnarráðsins (http://minarsidur.stjr.is)    Veittir styrkir til verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða… Sjá meira →

Frjáls félagasamtök í krísu – Hvernig má bregðast við?

Hvernig eiga frjáls félagasamtök að bregðast við þegar krísa kemur upp? Hvert er hlutverk stjórna og starfsmanna þeirra? Jeannie Fox, kennari við Hamlin-háskóli í Minnesota í Bandaríkjunum fjallar um krísustjórnun fyrir félagasamtök og hlutverk stjórna og starfsmanna í hádegisfyrirlestri fimmtudaginn 16. september næstkomandi. Fyrirlesturinn verður á Zoom og er öllum opinn. Í fyrirlestrinum mun Fox ræða um nýlegt dæmi frá… Sjá meira →

Áhrif nýrra laga- og skattareglna á starf almannaheillasamtaka

Stórbreytingar á starfsumhverfi almannaheillasamtaka ganga í gildi í haust, með nýjum lögum um félög til almannaheilla og nýjum skattareglum fyrir þriðja geirann. Nú kemur inn í skattalögin aukin hvatning til fyrirtækja og einstaklinga til þess að styðja við almannaheillastarfsemi–ef að líkum lætur mun þetta stuðla að bættri fjármögnun margra samtaka. Ómar H. Kristmundsson, prófessor við Háskóla Íslands, mun fara stuttlega… Sjá meira →

Oddfellowreglan gefur Almannaheillum húsnæði til þriggja ára

Félagar í Oddfellowreglunni á Íslandi afhentu, við hátíðlega athöfn í gær, Almannaheillum nýtt skrifstofuhúsnæði til afnota í Urriðaholti. Þetta er fyrsta fasta skrifstofa samtakanna. Stefnt hefur verið að formlegri vígslu húsnæðisins frá því í byrjun árs en samkomutakmarkanir hafa hamlað því. Guðrún Helga Bjarnadóttir, varaformaður Almannaheilla, bauð gesti velkomna, sérstaklega fulltrúa Oddfellowreglunnar. Á eftir henni steig Steindór Gunnlaugsson, formaður Styrktar-… Sjá meira →

Aðalfundur Almannaheilla 2021

Stjórn Almannaheilla, samtaka þriðja geirans, boðar til aðalfundar samtakanna. Aðalfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 3. júní nk. kl. 15:30 að Urriðaholtsstræti 14, Garðabæ.   Fundarstjóri verður Bryndís Snæbjörnsdóttir. Í lögum samtakanna segir: 4. grAðalfundur Almannaheilla fer með æðsta vald og ákvörðunarrétt í málefnum samtakanna. Skal hann að jafnaði haldinn fyrir 15. júní ár hvert. Senda skal út fundarboð til aðildarfélaga með minnst fjögurra vikna fyrirvara. Í… Sjá meira →

Samningar í 3ja geiranum – skipulögð framtíð

Tíundi hádegisfundur Almannaheilla og Vaxandi í vetur Á rafrænum hádegisfundi Almannaheilla, samtaka þriðja geirans og Vaxandi, miðstöðvar um samfélagslega nýsköpun við Háskóla Íslands verður umfjöllunarefnið; Samningar í þriðja geiranum – skipulögð framtíð. Þóra Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Áss styrktarfélags, mun fjalla um gerð þjónustusamninga hjá almannaheillasamtökum. Þóra hefur víðtæka reynslu í þriðja geiranum en starfsemi þriðja geirans er án hagnaðarvonar. Hún hefur… Sjá meira →

Samfélagsleg verkefni sem vekja athygli: Hádegisfundur Almannaheilla og Vaxandi

Á níunda hádegisfundi Almannaheilla, samtaka þriðja geirans og Vaxandi, miðstöðvar um samfélagslega nýsköpun við Háskóla Íslands fáum við góða gesti frá almannaheillasamtökunum Ungum umhverfissinnum, Góðvild og Geðhjálp. Samtökin hafa undanfarið vakið athygli á mikilvægum samfélagslegum málefnum með nýskapandi aðferðum. Dagskrá: 1. Egill Ö. Hermannsson, gjaldkeri Ungra umhverfissinna Ungir umhverfissinnar hafa nýlokið herferð Loftslagsverkfallsins #AÐGERÐIRSTRAX sem var til þess gerð að vekja athygli… Sjá meira →

Aukinn skattlegur hvati til stuðnings við almannaheillastarfsemi

Nýsamþykkt lög fela í sér hvetjandi skattaívilnanir til stuðnings við almannaheillastarfsemi og lækkun á skattaálögum almannaheillasamtaka.  Almannaheill fagna breytingunum sem stóru skrefi í átt að sambærilegu skattaumhverfi almannaheillasamtaka hér á landi og í helstu samanburðarlöndum Íslands; samtökin beina því til almannaheillasamtaka í landinu að kynna sér breytingarnar til hlítar og nýta sér alla þá möguleika sem felast í nýju lögunum. Breytingarnar efla ótvírætt möguleika samtaka sem… Sjá meira →

Markaðssetning félagasamtaka: Hádegisfundur Almannaheilla og Vaxandi

Á rafrænum hádegisfundi Almannaheilla, samtaka þriðja geirans og Vaxandi, miðstöðvar um samfélagslega nýsköpun við Háskóla Íslands verður umfjöllunarefnið markaðssetning félagasamtaka. Gestur fundarins er Laila Sæunn Pétursdóttir sem hefur umsjón með markaðsmálum Krafts, stuðningsfélags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda. Hún fjallar um undirbúning og framkvæmd markaðsherferða og kynnir markaðsherferðir sem hún hefur unnið. Er markaðsstarf félagasamtaka frábrugðið… Sjá meira →