Beint á leiðarkerfi vefsins
almannaheill - heim

Þriðji geirinn

Hugtökin einkageirinn og opinberi geirinn eru vel þekkt enda hafa þau lengi verið í notkun meðal fræðimanna og almennings. Hugtakið þriðji geirinn er aftur á móti síður þekkt enda fræðasviðið ungt. Eins og orðið ber með sér vísar það til þriðja geira við hlið hinna tveggja þar sem opinberi geirinn er sá fyrsti og einkageirinn annar. Sjálfboðaliðar eru einkennandi fyrir þriðja geirann og hefur hann þar sérstöðu gagnvart hinum tveimur geirunum eins og sjá má í töflu 1. Þannig innifelur vinnuaflið í þriðja geiranum bæði starfsfólk sem fær greitt og sjálfboðaliða sem fá ekki greitt. (Anheier H.K., 2005)

 

 




Toppmynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta