Geðhjálp Fyrirmynd 2018

Frá vinstri: Ketill Berg Magnússon, formaður Almannaheilla, Guðni Th. Jóhannesson, forseti, Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar, Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar og Fanney Karlsdóttir, verkefnastjóri Heimsmarkmiðanna.

·       Almannaheill fagnar 10 ára afmæli

·       Tugir þúsunda í almannaheillafélögum

·       Geðhjálp hlaut viðurkenninguna Fyrirmyndin 2018

„Fólk sem gerir aldrei neitt saman er ekki hægt að kalla þjóð,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og vitnaði þar í Jóhannes S. Kjarval í erindi sínu á 10 ára afmælishátíð Almannaheilla – samtaka þriðja geirans – sem fram fór í Veröld, húsi Vigdísar í dag. Fjöldi félaga sem tengjast Almannaheillum voru gestir í afmælinu. Þar voru líka þrír fyrstu formenn samtakanna heiðraðir. Það voru þau Guðrún Agnarsdóttir, Ragna Árnadóttir og Ólafur Proppé.

Á hátíðinni tilkynnti Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, hvaða félagasamtök hljóta viðurkenninguna Fyrirmyndin 2018. Hún er veitt félagasamtökum sem starfa af fagmennsku og skipuleggja starfsemi sína með gagnsæi, þjónustu, skilvirkni og siðferði að leiðarljósi.

Fyrirmyndina 2018 hlaut Geðhjálp og tók Hrannar Jónsson, formaður þeirra, við viðurkenningunni fyrir hönd félagsins. Hrannar sagði þetta ofboðslegan heiður og væri hann stoltur að taka við þeim.
Þetta er í fyrsta skipti sem viðurkenningin Fyrirmynd 2018 er veitt en viðurkenningin og hugmyndafræðin á bak við hana verður þróuð áfram næstu árin.

Dómnefndina að þessu sinni skipuðu Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sérfræðingur hjá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, formaður. Ómar H. Kristmundsson, prófessor í HÍ og Vilhjálmur Bjarnason, stjórnarmaður í Almannaheillum.

Margar góðar tilnefningar bárust og skoðaði dómnefndin starfsemi þeirra auk annarra sem hún taldi sjálf koma til greina. Við valið voru notaðir þeir matsþættir sem kynntir höfðu verið í auglýsingum en þeir eru:

  • Stjórnarhættir – eru samþykktir félagsins og stjórnun lýðræðisleg og fagleg?
  • Gæðastarf – starfar félagið í samræmi við hlutverk sitt og eru gæði starfseminnar metin reglulega?
  • Rekstur – er stefnumótun og stjórnun skýr og vel framsett og er fjármálastjórnun gagnsæ?
  • Mannauðsstjórnun – er skipulag starfsmanna og sjálboðaliða góð þ.m.t. fræðsla og efling fagvitundar?
  • Tengsl og áhrif í samfélaginu – samstarf við aðra, velvild í garð þess og sýnir það samfélagsábyrgð?

Í rökstuðningi dómnefndar segir að starfsemin sé skipulögð og val þess á verkefnum og útfærsla þeirra ber með sér að félagið vinnur afar faglega. Sérstaklega er tekið eftir að upplýsingar um fjármál félagsins eru aðgengilegar öllum, en félagið birtir ársreikninga sína á vefnum. Góður árangur félagsins birtist í velvild og trausti sem það hefur meðal þeirra sem þau starfa fyrir, stuðningaðilum og samstarfsaðilum.

Stjórn Almannaheilla óskaði Geðhjálp til hamingju með viðurkenninguna. Ketill Berg Magnússon, formaður Almannaheilla, segir almannaheillafélögin mörg með tugþúsundir félagsmanna. Þeir þjóni mörgum, gegni afar mikilvægu hlutverki í samfélagi okkar og því mikilvægt að þau hafi fagmennsku og trúverðugleika að leiðarljósi.