Beint á leiðarkerfi vefsins
almannaheill - heim

Greinar

18.5.2010

Aðalfundur Almannaheilla

Aðalfundur Almannaheilla verður haldinn 19. maí, kl. 14:00 til 16:30 á fyrstu hæð í húsnæði ráðgjjafaþjónustu Krabbameinsfélagsins í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík.

29.3.2010

ÞRIÐJI GEIRINN SIÐLEGIR STARFSHÆTTIR OG ÁBYRGÐ STJÓRNA ALMANNAHEILLASAMTAKA

Opin hádegismálstofa á vegum Háskólans í Reykjavík og Almannaheilla, samtaka þriðja geirans.

3.12.2009

Stefán Konráðsson hlaut Laurel heiðursviðurkenningu

Framkvæmdastjórn Evrópusambands Ólympíunefnda sæmdi um síðustu helgi Stefán Konráðsson fyrrverandi framkvæmdastjóra Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sérstakri heiðursviðurkenningu, Laurel - lárviðarsveig EOC.

30.11.2009

Fullt var út úr dyrum í málstofu um þriðja geirann a tímum endurreisnar

Málstofan, sem haldin var á vegum félagsráðgjafardeildar og stjórnmálafræðideildar Háskóla Íslands og Almannaheilla var mjög vel sótt og var gerður góður rómur að máli frummælenda.

24.11.2009

Hádegismálsstofa; Þriðji geirinn á tímum endurreisnar

Opin hádegismálstofa, allir velkomnir:  
Þriðji geirinn á tímum endurreisnar: Lýðræði, félagsauður, betra velferðarkerfi og nýsköpun þess?
Föstudaginn 27. nóvember kl. 12-13.15 Háskólatorg 101
Skráning:
http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/thridjigeirinn

9.10.2009

Almannaheill ályktar

Almannaheillasamtök eru eðlilegir bandamenn hins opinbera.  Íslensk almannaheillasamtök hafa ekki látið sitt eftir liggja í glímunni við afleiðingar efnahagskreppu þjóðarinnar. Þau hafa létt undir með einstaklingum og hópum sem orðið hafa fyrir barðinu á fylgifiskum kreppunnar með ýmsum hætti, t.d. vinnu sjálfboðaliða og fjárhagslegum stuðningi, sem oftast er fenginn beint frá almenningi. Þau hafa einnig skapað ný úrræði, hlaupið undir bagga með opinberum aðilum og jafnvel tekið að sér verkefni og mikilvæga þjónustu sem ríki og sveitarfélög sjá sér ekki lengur fært að sinna.



Toppmynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta