Aðalfundur Almannaheilla 2022

Stjórn Almannaheilla, samtaka þriðja geirans, boðar til aðalfundar samtakanna.

Aðalfundur Almannaheilla verður haldinn fimmtudaginn 2. júní nk. kl. 15.30 í húsi Krabbameinsfélagsins við Skógarhlíð 8, Reykjavík.

Fundarstjóri verður Breki Karlsson.

Í lögum samtakanna segir:

  1. gr
    Aðalfundur Almannaheilla fer með æðsta vald og ákvörðunarrétt í málefnum samtakanna. Skal hann að jafnaði haldinn fyrir 15. júní ár hvert. Senda skal út fundarboð til aðildarfélaga með minnst fjögurra vikna fyrirvara. Í aðalfundarboði skal kynna dagskrá, fundartíma og fundarstað. Aðalfundurinn telst lögmætur ef löglega er til hans boðað.
  2. gr.
    Aðildarsamtökin eiga rétt á einum fulltrúa á aðalfundinn hvert. Aðildarsamtök sem greiða félagsgjöld samkvæmt efri þrepum í félagsgjaldaskrá Almannaheilla skulu eiga rétt á viðbótarfulltrúum, einum fyrir hvert þrep.

Á dagskrá aðalfundar er eftirfarandi atriði:
• Kosning fundarstjóra og fundarritara
• Ávörp gesta
• Skýrsla stjórnar um nýliðið starfsár og starfið fram undan
• Skýrsla um fjárhag samtakanna
• Umræður um skýrslur og afgreiðsla ársreiknings
• Kosning stjórnar og skoðunarmanna
• Ákvörðun um gjaldskyldu aðildarfélaga
• Lagabreytingar
• Önnur mál